Traustur samstarfsaðili
Við komum verkefnum á hreyfingu með fjölbreyttum fjármögnunarlausnum. Hröð ákvarðanataka, lítið flækjustig og áralöng reynsla gerir okkur að góðum samstarfsaðila. Sendu tölvupóst á johann@sandar.is ef þú ert með verkefni sem þarf að fjármagna.
Fjármögnun
Brúarfjármögnun er skammtímafjármögnun til allt að 12 mánaða. Sem dæmi má nefna fjármögnun til viðbótar við framkvæmdafjármögnun hjá banka, rekstrarfjármögnun til að jafna árstíðabundnar sveiflur eða fjármögnun vegna fasteignaverkefna s.s. lóðakaupa o.fl.
01
Brúarfjármögnun
Við getum komið að framkvæmdafjármögnun með ýmsum hætti. Í gegnum tíðina höfum við unnið með verktökum í litlum og meðalstórum verkefnum. Við getum fullfjármagnað smærri verkefni, s.s. einbýlishús, raðhús og minni fjölbýli en einnig getum við veitt viðbótarfjármögnun inn í stærri verkefni á eftir bankafjármögnun. Í einhverjum tilfellum getum við komið inn með eigið fé í verkefnið í samstarfi við verktaka eða aðra fjárfesta.
02
Framkvæmdafjármögnun
Fasteignafjármögnun í verkefnum þar sem þörf er á lánsfjármögnun á aðeins nokkrum dögum t.d. í viðskiptum þar sem eignir eru að bjóðast undir markaðsverði, leysa þarf eignir undan nauðungarsölu o.fl. Einnig geta eigendur fasteigna, þar sem veðrými er til staðar, fengið fjármögnunina greidda út í peningum og nýtt í önnur verkefni.
03
Fasteignafjármögnun
Fjármögnun sem sníða þarf að verkefnum sem falla ekki að hefðbundinni fjármögnun. Dæmi um þetta eru seljendalán sem kröfuhafi vill framselja, innflutningur á bílum, tækjum og einingahúsum, kaup á fyrirtækjum, byggingarverkefni þar sem við skoðum ýmsar útfærslur s.s. kauprétti á fasteignum o.fl. Hafðu samband og við skoðum verkefnið með þér.
04
Sérhæfð fjármögnun
Kröfufjármögnun hentar fyrirtækjum þar sem greiðandi er með greiðslufrest frá 2 vikum upp í 2 mánuði eins og algengt er hjá sveitarfélögum og stærri fyrirtækjum. Seljandi kröfunnar fær greitt allt að 90% strax og þarf því ekki að bíða eftir greiðslu á gjalddaga reikningsins.
Kröfufjármögnun er fljótleg og einföld leið til að auka greiðsluflæði. Lágmarksfjárhæð reiknings er 5 mkr m/vsk.
05
Kröfufjármögnun
Yfirdráttarheimild nýtist þeim sem þurfa fjármögnun í skamman tíma.
Ekkert uppgreiðslugjald.
Til allt að 12 mánaða í senn og hægt að haga endurgeiðslum eftir þörfum hvers og eins.
Vextir skv. samkoumlagi og greiðast aðeins af nýttri heimild.
06
Heimild
Við fjármögnum erlend vörukaup allt að 90% fyrir íslensk fyrirtæki og getum gefið allt að 3 mánaða greiðslufrest. Lágmarksupphæð innflutnings er 200.000 EUR en hámark fer eftir mati á fyrirtækinu en getur verið allt að 5M EUR. Fyrir heildsölur, bílaumboð, tækjaumboð, framleiðslufyrirtæki og önnur fyrirtæki.
07
Erlend vörukaup
Ertu að flytja út vörur og vilt tryggja greiðslu reikningsins á gjalddaga hjá erlendum kaupanda? Með erlendum samstarfsaðila okkar bjóðum við upp á tryggingu á greiðslu svo framarlega að kaupandi standist áhættumat. Við vinnum með íslenskum fyrirtækjum sem eru að sækja inn á erlenda markaði.
08
Greiðslutygging
Í samstarfi við erlendan samstarfsaðila okkar bjóðum við upp á ýmsar tryggingar í viðskiptum. Sem dæmi má nefna tryggingar á fyrirframgreiðslu til erlends birgja vegna vörukaupa þar sem leggja þarf fram staðfestingargreiðslu í byrjun.
09
Aðrar tryggingar

Um félagið
Sandar fjármögnun ehf er í eigu Jóhanns Sveinbjörnssonar sem er með yfir 10 ára reynslu af fjármálamörkuðum. Félagið er sjálfstætt einkahlutafélag með áherslu á lána- og fjárfestingastarfsemi.

